Aðstoð
Aðstoð við Deildina
Síðast uppfært: 29. júlí 2026
Um appið
Deildin er samfélagsleikur fyrir vinahópa, rekinn af Forrit ehf. („Deildin“, „við“). Þú stofnar deild með vinunum, spilar Hjólið, Hærra eða lægra og veðjar á Markaðnum — allt í perlum (◉), sem eru leikjagjaldmiðill án raunvirðis.
Hafa samband
Sendu okkur línu á info@deildin.com — hvort sem það er villa, hugmynd að nýjum leik eða spurning um aðganginn þinn. Við svörum yfirleitt innan tveggja virkra daga.
Til að við getum aðstoðað sem hraðast er gott að láta fylgja: netfangið sem aðgangurinn er skráður á, heiti deildarinnar, tækið (iPhone eða Android) og skjáskot ef hægt er.
Forrit ehf.
Reykjavík, Ísland
info@deildin.com
Ég kemst ekki inn
Innskráning fer fram með netfangi og lykilorði. Veldu „Forgot password?“ á innskráningarskjánum — eða „Gleymt lykilorð?“ undir stillingum í „Þú“-flipanum — og við sendum þér endurstillingarhlekk á netfangið. Hlekkurinn opnast í appinu — athugaðu ruslpóstinn ef hann skilar sér ekki innan fárra mínútna.
Ef netfangið þitt er ekki staðfest, eða þú færð engan póst frá okkur, sendu þá póst á info@deildin.com og við lögum það handvirkt.
Boðshlekkurinn virkar ekki
Boð í deild líta út eins og deildin.com/d/KÓÐI. Opnist hlekkurinn í vafra frekar en í appinu geturðu alltaf slegið kóðann inn handvirkt: opnaðu appið, veldu „Nota boðskóða“ á heimaskjánum (eða „Ertu með boðskóða?“ í deildarvalinu) og sláðu inn kóðann aftast í hlekknum.
Sé deildin full, lokuð eða kóðinn útrunninn þarf sá sem á deildina að senda nýtt boð.
Ég fæ engar tilkynningar
Deildin sendir tilkynningar þegar veðmál gerast upp og þegar eitthvað gerist í deildinni þinni. Fáir þú engar: athugaðu að tilkynningar séu leyfðar fyrir Deildina í stillingum símans (Stillingar → Deildin → Tilkynningar) og að síminn sé ekki á „Ekki trufla“.
Perlur, stig og uppgjör
Perlur eru bundnar við hverja deild — staðan þín í einni deild flyst ekki yfir í aðra. Þær eru leikjagjaldmiðill, hafa ekkert raunvirði og er hvorki hægt að kaupa né skipta í peninga.
Ef stigatafla eða perlustaða lítur rangt út skaltu draga niður til að endurhlaða skjáinn. Standi villan eftir, sendu okkur skjáskot á info@deildin.com og við skoðum færsluna.
Eyða aðgangi
Þú getur eytt aðganginum þínum beint í appinu undir „Þú“ → „Hættusvæði“. Nánari lýsing, ásamt því hvaða gögnum er eytt, er á síðunni Eyða aðgangi.